Skilmálar

Skilmálar Mömmu ehf.

Afgreiðslufrestur:

  • Allar vörur sem pantaðar eru hjá mömmur.is eru afgreiddar í síðasta lagi daginn eftir að pöntun er greidd.
  • Ef vara er uppseld kemur það fram hjá vörunni.

Afhending og sendingarkostnaður: Vörur sem pantaðar eru á vefverslun mömmur.is eru sendar með Íslandspósti.

  • Sendingarkostnaður fyrir hverja pöntun er 750 krónur.
  • Sendingarkostnaður fyrir erlendar pantanir er samkvæmt þyngd pakkans hverju sinni og höfum við samband við kaupandann varðandi kostnað.
  • Gera þarf ráð fyrir að það taki 2-3 virka daga að afhenda sendingu.
  • Allar sendingar eru sóttar á pósthúsið nema um annað sé samið.

Greiðslur og pöntun: Pantanir eru greiddar með millifærslu.

  • Hægt er að greiða vörur í gegnum reikning mömmur ehf. 0186-26-5806, með visakorti, debedkorti og peningum.
  • Þegar um gjafabréf frá mömmur.is er að ræða þarf að hafa samband í gegnum netfangið okkar.

Gjafir:

  • Hægt er að láta pakka vörunum inn sem gjöf en sú þjónusta kostar 200 krónur aukalega.
  • Hægt er að senda gjöfina á þann sem á að fá hana.

Skilafrestur:

  • Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem eftirfarandi atriðum er fylgt eftir:
  • Greiðslukvittun er framvísað. 
  • Umbúðir og vara eru óskemmd.
  • Ef vöru er skilað þarf kaupandi að greiða sendingarkostnað.
  • Innleggsnóta fæst í staðinn fyrir þá upphæð sem varan kostaði.
  • Ef vara reynist gölluð fæst hún endurgreidd gegn því að vera skilað. Sendingarkostnaður er þá greiddur af mömmur ehf.
  • Ekki er hægt að skila matarlitum, matartússlitum eða satíndufti nema ef um framleiðslugalla er að ræða.

Verðlag:

  • Vöruverð í vefverslun mömmur.is er gefið upp í íslenskum krónum ásamt virðisaukaskatti sem er 7%  (bækur og matvæli) og 25,5 %
  • Vöruverð er birt með fyrirvara um myntbreytingar eða prentvillur.
  • Vöruverð getur breyst fyrirvaralaust.

Þessir skilmálar eru verslunarskilmálar mömmur.is og tóku gildi þann 29. júní 2010.

Skilmálarnir teljast samþykktir af hálfu viðskiptavinar þegar viðskipti hafa átt sér stað á milli kaupanda og seljanda.